hæhæ

grimur bloggar

05.04.2007 22:12:50 / grimsi20

hellu

jæja gott fólk góðann daginn og góða kvöldið og alles :)

 

jæja hvað segið þið... allaveganna ég segi bara allt gott ég er víst orðinn eins og ég á að vera eða svo sagði agnes í gær veit ekki alveg hvort þetta sé rétt því að hún var í glasi í gær enn allaveganna gærkvöldið var frábært og þakka ég öllum sem að voru að skemmta sér á eskifirði á ballinu með buff :) enn allaveganna var ég driver á ballið og skemmti mér bara geðveikt á ballinu og dansaði eins og fáviti enn það var bara betra :) enn eins og skeður eiginlega alltaf þá hverfur hópurinn sem að maður er með og sést ekki fyrr enn löngu seinna aftur:S þannig að það var eiginlega bara ég og agnes sem dönsuðum eitthvað frá stöðvarfirði eða allaveganna að minni vitneskju......... enn ég hélt nú að ég myndi verða blindur þar sem að myndavélin hjá agnesi og eitthvað hjá ernu ætlaði ekki að hætta að taka myndir í kringum mig og af mér(verst fyrir þær að ég festist ekki á mynd:lol: ) enn allaveganna svo var ballið búið og ég skutlaði fólkinu mínu yfir á rfj og fór aftur á esk að ná í breska félaga mína sem að borguðu mér 5000 kr fyrir að fara aðra ferð á esk að ná í sig þannig að ég kom í gróða útúr þessu kvöldi :) og eftir seinni ferðina dreif ég mér í partý á rfj þar sem ég var eini stöðfirðingurinn(mér fannst þetta btw lélegt krakkar að kíkja ekki smástund í partý:S ) og var bara þetta massastuð þar og ég skemmti mér þar lika og fór svo af stað á stf klukkann 06:30 og var kominn heim 10 mínútur yfir 7 og þá fór ég bara að sofa......

 

dagurinn í dag er nú frekar stuttur vaknaði klukkann 2 fór á fætur kíkti á msn og þar ákváðum agnes og ég að fara á rfj að fá okkur bragðaref og versla fyrir mömmu og pabba agnesar þegar þetta var búið skutlaði ég agnesi aftur á stf og dreif mig nú bara strax í vinnunna og sit ég hér enn að láta mér leiðast þar sem ég hef ekkert að gera(þeir sem koma og vilja bjór fá fyrstu 2 fría:D  ) enn allaveganna þetta er orðið nógu tilgangslaust blogg í bili þannig að ég heimta að þið kommentið eitthvað skemmtilegt þá meina ég eitthvað annað enn bara hæ flott blogg :P enn já segi þetta gott í bili og heyri ykkur seinna

 

 

grimsi out 


» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 10:34:26 / grimsi20

sól og blíða

jæja strax nýtt blogg enn það verður nú ábbyggilega bara stutt og laggott

 jæja ég kom heim úr vinnunni (var á næturvakt) klukkann 10 og ákvað að sleppa því að fara að sofa til að snúa sólahringnum við mér fannst það góð hugmynd á þeim tíma..... enn ég fer að leika mér í tölvunni og ákveð að fara í tölvuleik þar sem maður þarf að kaupa selja skjóta drepa og svo framvegis(þetta vanalega bara í tölvuleikjum) svo gengur mér geðveikt vel og kominn með mikinn pening og stórann og góðann her og alltsamann nei svo líður á daginn og klukkann orðinn 4 og ég bara sofna fyrir framann tölvuna og sef í stólnum til klukkann 6 og þegar ég vakna mér til mikillar furðu er bara alltsamann horfið :S ég bara skildi þetta alls ekki :D enn þetta var samt alltílagi þetta var bara leikur þannig að ég þurfti engar áhyggjur að hafa enn eftir þetta allt samann fór ég bara að sofa og vaknað klukkann 8 á þessum fimmtudegi og sé það mér til enn meiri furðu að það er eiginlega bara sumarveður úti

 

heyrðu að öðru efni nú ganga sögur um að stelpann sem að er á vöktum á hótelinu frá 5-24 sé bara að fara með securitas mönnum í bakherbergið og fá sér shortara ég veit nú að þetta er bara einhver einmanna manneskja að láta sér leiðast sem að er að bera þennann orðróm út því að ef þetta væri satt þá væri hún alltaf í threesome þarna á bakvið því þetta er reykinga herbergið okkar og ég fer alltaf með þeim þangað á bakvið til að spjalla þannig að meðað við þessa sögu þá hef ég bara verið í threesome þegar ég er á næturvöktum:D helvíti magnað alveghreint

 

 

jú svo er ég líka að auglýsa eftir starfsfólki í bordel hús þorgríms þannig að ef þið hafið áhuga endilega hafa samband :D

 

gorki out 


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 02:38:52 / grimsi20

næturnar er tími dauðans fyrir austan

jæja nú sit ég bara á hótelinu að reyna að blogga eitthvað þar sem ég hef ekki neitt betra að gera akkúrat núna :S  enn já það er voða fátt að frétta af mér ég hef ekkert farið til Magnúsar Orra neitt nýlega þar sem að hann er í stórborginni með mömmu sinni....... enn eins og ég sagði þá hef ég voða fátt að segja þar sem að líf mitt snýst aðallega um að vinna mér inn pening svo ég verði nú skuldlaus sem allra fyrst enn þar sem að maður er ekki lærður neitt þá fær maður ekki neitt rosalega góð laun hérna fyrir austan :( enn maður sættir sig við það og vinnur bara þeim mun meira og betur svo maður geti nú í framtíðinni beðið um launahækkun :D fyrir þá sem ekki vita þá vinn ég á hótelinu á reyðarfirði og mjög fínt að vinna hér og það eina sem ég get sett útá þessa vinnu er aksturinn enn það er nú búið að bjóða mér herbergi hér á rfj enn það er bara mál sem ég verð að hugsa útí :)

 

enn nóg um vinnunna og að einhverju skemmtilegra eins og utanlandsferðir nú er planið hjá fjölskyldunni að fara til svíþjóðar í sumar þar sem að afi minn er að verða 70 minnir mig :S enn allaveganna ætla ég að reyna að fara og hefði vilja hafa hann Magnús Orra með til að leyfa þeim úti að hitta strákinn enn hann verður nú bara ekki orðinn nógu gamall til að fara frá mömmu sinni þegar að ég fer þannig að eina lausnin sem ég sé til að ná magnúsi með mér til svíþjóðar er að bjóða freydísi til svíþjóðar að hitta vini sína þar ef hún er enn í einhverju sambandi við þá enn það er bara hlutur sem ég ætla að ræða við hana næst þegar að ég fer og hitti litla prinsinn þó ég viti það samt að henni þætti ábyggilega gaman að fara út og hitta vini sína :) og plús það að fargjaldið er svona 50.000 fyrir 2 fullorðna fram og tilbaka þannig að það er nú ekki svo mikill peningur innifalinn í því:)

 

enn nú skal ég segja ykkur planið fyrir helgina sem er að koma

Föstudagur: vinna frá 11-16 keyra heim fara í sturtu fá sér að borða leika sér í tölvunni og fara svo að sofa:(

 

Laugardagur: vinna frá 9-17 keyra heim fara í sturtu fá sér að borða leika sér í tölvunni kíkja kannski smá rúnt og fara svo að sofa:(

 

Sunnudagur: vinna frá 10-17 og svo bara sama rútínann eftir vinnu :(

 

ef þið eruð með einhverjar uppástungur um hvað væri hægt að gera um helgina eftir vinnu endilega segið mér þar sem að mér er farið að líða eins og tilfinningalausu vélmenni:S og það er ekki skemmtileg tilfinning enn allaveganna nú held ég að ég sé að verða búinn að blogga nógu mikið af tilgangslausum hlutum kommentið og skrifið í gestabók

 

Gorki OUT 


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 11:20:07 / grimsi20

góðann daginn kvöldið eða hvenær þið lesið þetta

jæja nú tek ég út könnunnina mína góðu og strákarnir eru greininlega ekki að standa sig í föstum samböndum þar sem flest allir eða 67% kusu að strákar væru með heilann í klofinu og 33%kusu að enginn heili væri til staðar og ef þið reiknið þetta út þá sjáið þið það að 0% kusu að þeir væru með hann á milli eyrnanna..... common strákar þið eruð að niður níða þetta kyn okkar með því að láta tittlinginn stjórna ykkur enn vissulega eru góðar stundir sem bíða manns ef maður eltir hann enn samt :) enn já nú er ég nýkominn af næturvakt og veit ekkert hvað ég á að fara að gera..... enn ætli ég fari ekki bara að fara að íhuga það að fara að sofa þar sem að ég fer á æfingu klukkan 8 og mæti svo í vinnu klukkann 10 í fyrramálið..... bless í bili og muna að kommenta eða kvitta

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2007 12:02:15 / grimsi20

jæja langt síðann ég bloggaði síðast

jæja í tilefni þess að bára varð 18 í gær og magnús orri varð 1 mánaða í gær þá ætla ég að koma með smá blogg og smá svona bull eitthvað.....

jæja byrja á því að segja ykkur frá því að ég missti af fyrsta brosinu hans magnúsar sem að mér fannst flott og gott mál fyrir utan það að ég sá það ekki:cry: enn það er ekkert hægt að gera í því nema bara að taka því eins og maður og halda friðinn og strjúka á sér kviðinn :)

jæja að öðrum málefnum ég var að fá mér fyrstu klippinguna á árinu og var það sjálfur hárklippi meistarinn hann Þorgrímur Valur AKA gorki sem að klippti hana alveg góð klipping og svona sko :S verst hvað hún er stutt.... og að öðrum efnum

þetta er fyrir þær stelpur sem að eru enn að nota "ég er með hausverk" sem afsökun til að sleppa frá kynlífi... þetta virkar ekkert lengur því að kynlíf laga hausverk og ýmis önnur veikindi líka þannig að segið nú bara eins og er framvegi og segið bara ég nenni ekki í kvöld eða farðu ofann af mér drengur (fyrir stelpurnar sem að eru með aggressiva rúmfélaga) :D enn já svo að öðru málefni......

þetta snýst nú um fólkið sem er alltaf að segja manni að hætta að reykja sem að maður á náttúrulega að gera enn minns ekki alveg að standa sig þar enn allaveganna í hvert skipti sem að maður/kona eða what ever segir manni að hætta að reykja eða ýjir að því að maður eigi að hætta að reykja þá reykir maður 5-10 sígarettur aukalega á næstu 2-4 dögum og þetta virðist ekki stór tala enn hún er það ef maður fer að reikna út verðið og tímann sem maður á víst að týna af lífi sínu með því að reykja þá er þetta orðið helvíti stór tala í árslok.... þetta var frétt í einhverju vísindablaði ef ég man rétt þannig að fólk sem að er alltaf að segja manni að hætta að reykja vinsamlegast dragið aðeins úr því þið eruð ekkert að hjálpa okkur reykingafólkinu enn þetta er samt mjög fallega hugsað af ykkur :) enn ég veit nú ekki alveg hvort þetta sé satt enn ég gæt samt hallast að því að þetta sé rétt  

ég er kominn með vinnu allir að hópa húrra (pff eins og það sé eitthvað merkilegt)... oki ég er kominn með vinnu á hóteli á reyðarfirði sem næturvörður/barþjónn helvíti magnað starf sit á stól mest alla nóttina að gera ekki neitt geðveikt stuð sko...... það sem ég á að gera er að þrífa salinn og lobbyið(tekur 15 mín mestalagi) svo þarf ég að bera fram morgunmatinn um hálf 6 svo er ég bara búinn fyrir utan "breakfast clubinn" sem að við erum með hjá okkur eftir þennann tíma hef ég ekkert að gera í svona 4-5 tíma geðveikt stuð sko :D enn breakfast club sem að ég er að tala um er hópur aldraðra manna sem vinna hjá bechtel á reyðarfirði og koma á morgnanna (útskýringin á orðinu breakfast) að ví er klukkann 4 hálf 5 þegar þeir koma enn þeir koma á vissum tíma á hverju morgni og kaupa sér svona 4 bjóra hver og standa við barinn og drekka og spjalla við hvorn annann og mig og svona enn þetta er það eina merkilega sem skeður hjá mér á nóttunni á meðan mörg ykkar eru sofandi uppí rúmi og láta ykkur dreyma um brad pitt eða bíla í tilfelli strákanna og ég tók nú bara brad pitt því að stelpur töluðu svo rosalega mikið um hann á tímabili veit nú ekkert hvort það er enn í gangi enn allavegana þetta er orðið gott þarf líka á klósettið að míga þannig að ég má ekkert vera að þessu

 

guð blessi ykkur öll (right:haha::evil: )

 

enn já ég kveð að sinni og veriði blessuð og eigið ykkur góða daga framundan

 

 

KV grimsi


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 21:08:07 / grimsi20

jæja þá er Magnús Orri Þorgrímsson kominn í heiminn

jæja þá er strákurinn loksins kominn í heiminn enn það var nú mikið púl og streð....
hann kom í heiminn 18 janúar klukkann 20:58 og var hann þá búinn að vera fastur í ca. 4 tíma og vildi ekkert koma út enn hann kom nú loksins og var hann 51 cm og akkúrat 3600 grömm...... ég get alveg fullyrt það að besta stund lífsins er þegar þú sérð og heldur á þínu eigin ný fædda barni..... enn svo 19 janúar var hann nú skírður líka og heitir hann Magnús Orri og nafni hanns í rvk segir að hann verði nú bara algjör foli enn ég ætla að skrifa meira seinna þar sem ég er þreyttur núna bless í bili :):):):) 

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.01.2007 11:41:52 / grimsi20

15 dagar og minns farinn að verða spenntur

jæja nú eru bara 15 dagar að litli strákurinn á að koma í heiminn og mig hlakkar geðveikt mikið til enn hlakkar mig samt ekki til að vita kostnaðinn að keyra alltaf á milli stöðvarfjarðar og hafnar enn ég ræni bara banka eða eitthvað til að redda því ;) enn það er mikið af mínu frændfólki að bíða eftir stráknum og svo náttúrulega ömmurnar sem að verða langömmur þær eru ofurspenntar enn ég er sjálfsagt allra verstur ég get ekkert sofið á næturnar þar sem ég er smeykur um að það verði hringt í mig á meðan ég er sofandi og ég nái ekki að vakna við símann enn já nóg um það.........
í gær fékk ég hringingu frá einni frænku minni sem að spurði hvort ég nennti ekki að koma niður í íþróttahús að gera eitthvað og ég sagði já og ég var þar frá 4-hálf átta á fótboltaæfingum og þegar ég vaknaði í morgunn var ég að drepast í höndunum af hasperum enn þetta var samt geðveikt gaman að vera þarna í fótbolta með öllum enn nóg af bloggi fyrir þennann dag


kv verðandi barnsfaðir þorgrímur

» 6 hafa sagt sína skoðun

16.12.2006 14:16:02 / grimsi20

myndir komnar

jæja þá eru komnar myndir af gærkveldinu sem var bara helvíti magnað ef ég á að segja alveg eins og er :lol: skeði ekkert merkilegt svo sem enn það voru bara allir í geðveiku stuði þangað til að eg skrapp aðeins í burtu og þegar að ég kom tilbaka var tónlistin farin og allir bara geðveikt dauðir eitthvað veit ekki afhverju

bless í bili


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.12.2006 17:32:00 / grimsi20

mér leiðist

jæja hvað á maður að segja jú ég bætti við smá tengli þarna til að sanna það að það sé betra að vera karlmaður ég er samt engin karlremba enn já það eru samt margir punktar þarna sem að eru alveg réttir þannig að mér finnst að þið ættuð að lesa þetta og kommennta svo enn já það er ekkert búið að vera að ske hjá mér neitt nýlega er bara að bíða eftir 20 jan og vinnu þannig að ég læt þetta gott heita í bili


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.12.2006 16:06:09 / grimsi20

jæja smá blogg

jæja góðan daginn ég ætla nú að segja ykkur frá gærdeginum...... jæja ég vaknaði klukkann 12 og fór á fætur þá svo horfði ég á bíómyndina beerfest mæli mjög mikið með henni enn svo þegar ég var búinn með þessa mynd þá stuttu seinna var komin kvöldmatur og komið að mér að elda :) ég átti að búa til pizzu og ég verð nú bara að segja að hún heppnaðist helvíti vel þótt ég segi sjálfur frá enn eftir það fór ég klukkann 1 á breiðdal að ná í Kötu enn ég var ekki kominn aftur fyrr enn um 4-5 leytið í morgunn og þarna á breiðdalsvík virtist allt bara að stefna í slagsmál á milli kötu og einhvers 40 kalls

enn ég ætla láta þetta vera nóg í bili þannig að ég segi bara bless og kommentið og skrifið í gestabók:)

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.12.2006 13:46:54 / grimsi20

jæja hvað haldið þið að vitið um mig????

þetta er stolið frá frænku minni enn svarið þessum spurningum og svo set ég link með svörunum:)

Fullt nafn??

Hvar kynntumst við??

Hversu lengi höfum við þekkst??

Hversu vel þekkirðu mig??

Á ég barn/börn??

Á ég dýr??

Trúi ég á guð??

Hvað hugsaðirðu fyrst þegar þú sást mig??

Aldur minn??

Afmælisdagur minn??

Háralitur??

Augnlitur??

Á ég systkini ef já hve mörg??

Hvað finnst mér best að borða??

Hefurðu einhver tímann öfundað mig??

Hvað finnst mér skemmtilegast að gera??

Mannstu eftir því fyrsta sem að ég sagði við þig??

Hver er mín uppáhalds hljómsveit/tónlistamaður??

Hver er minn best eiginleiki??

Hvort er ég feiminn eða mannblendinn??

Er ég fyndinn eða alvörugefinn??

Er ég uppreisnaseggur eða fylgi ég öllum lögum??

Einhverjir sérstakir hæfileikar sem ég hef??

Ef það væri eitthvað flott gælunafn á mig hvað væri það??

Hvað heldurðu að verði um mig í framtíðinni??

Hver er uppáhalds minningin þín um eitthvað sem að við höfum gert saman??

Heldurðu að við eigum eftir að vera vinir í framtíðinni??




» 2 hafa sagt sína skoðun

01.12.2006 21:29:52 / grimsi20

tilhamingju mamma og pabbi með brúðkaupsafmælið

jæja í dag er 1 desember og fyrir 21 ári þá giftu mamma og pabbi sig og auðvitað þurfti ég að klúðra því sem að ég var búinn að plana með því að gleyma deginum:( enn svona er þetta og ekkert hægt að gera í því enn tilhamingju mamma og pabbi..... þá er kominn nýr mánuður og enn er ég ekki kominn með vinnu:( og trúið mér það suckar að sitja á rassgatinu allann daginn að gera ekki neitt enn já svona er lífið víst og verð ég bara að bíða þangað til að eitthvað kemur.... ekkert merkilegt hefur skeð síðan ég bloggaði seinast þannig að ég hef voða lítið að segja

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 14:40:03 / grimsi20

fyndinn hlutur

jæja þá er nú lygin loksins búin hjá henni kötu... sko kata er búin að vera að ljúga að gaur sem að hún "byrjaði með og trúlofaðist" í gegnum msn og það er mikið búið að ganga á enn það er sennilega bara best að þið lesið um hann og samtölin sjálf þannig að kíkið á www.blogg.central.is/djammdruslur    þetta er frekar neðarlega á síðunni undir nafninu heimskur gaur..... lesið þetta og kommentið á síðuna ef þið viljið
enn þá er ég farinn í bili :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

29.11.2006 20:56:13 / grimsi20

bloggnr2

jæja þá er víst miðvikudagur og sama að gera  hjá mér að reyna að finna mér vinnu.... ég er kominn með tölvuna mína til mömmu og pabba aftur svo veit eg ekki hvað ég á að segja ykkur meira.... enn kíkið reglulega og ég reyni að blogga oft

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 00:56:10 / grimsi20

fyllið þetta út um ykkur

1. miðnafnið þitt:

2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veik?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?


» 2 hafa sagt sína skoðun


RSS tengill